Grammyverðlaunahafinn og goðsögn í lifanda lífi, Sir Tom Jones heldur sannkallaða stórtónleika í Laugardalshöll 8. júní. Hann hefur selt yfir 100 milljónir platna á ferli sínum og átt 36 lög á vinsældarlistum í Bretlandi og 19 lög í Bandaríkjunum með smellum eins og Its Not Unusual, Delilah, Green Green Grass of Home, She´s a Lady, Kiss og Sex Bomb.
Auk þess að taka alla sína helstu smelli flytur hann lög af nýjustu plötum sínum, Praise & Blame og Spirit In The Room.
Enn eru til miðar á tónleikana.
Nokkrar sögur og myndir um vináttu Elvisar og Tom Jones.